Þú ert hér

Geirland á Síðu

Geirland á Síðu er landnámsjörð. Þar nam land Eysteinn hinn dygri, sem kominn var af Sunnmæri í Noregi. Bærinn Geirland stendur undir heiðarbrúninni skammt vestan Geirlandsár, sem er bergvatnsá. Áin hefur flæmst um landið syðst og valdið töluverðum landsspjöllum.

Geirlandsá kemur af vesturhálendi Kaldbaks. Í henni er Fagrifoss örskammt fyrir neðan leiðina að Laka. Áin skipti mörkum milli Hörgslands- og Kirkjubæjarhrepps áður en þeir voru sameinaðir 1990. Í katólskum sið var bænhús á Geirlandi.

Á Geirlandi bjó á síðustu öld, 1935-1984, Sigfús H. Vigfússon einn hinna landskunnu skaftfellsku túrbínusmiða. Sigfús reisti 32 vatnsaflsstöðvar, þar af 26 í Vestur-Skaftafellssýslu. Geirland er um 3 km frá þjóðveginum, svo að þaðan er mjög stutt að heimsækja sögustaði nágrennisins. Skammt fyrir vestan Geirland eru Kleifar, hinn forni þingstaður hreppanna þar sem Strákalækur dettur snoturlega fram af heiðarbrúninni. Þar var síðast þingað árið 1916.

Vestan þingstaðarins fellur áin Stjórn og myndar Stjórnarfoss, þar sem hún rennur fram úr gljúfrinu. Rétt vestan við ána er hið svonefnda kirkjugólf, en þar sér ofan á stuðlaberg, sem l

Geirland er opið allt árið um kring.
Gestgjafar eru Erla Ívarsdóttir og Gísli Kjartansson.

Um okkur

Þú ert hér: Forsíða or Um okkur

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English