Þú ert hér

Geirland tekur þátt í Matarklasa Suðurlands.


Gestrisni sunnlendinga er viðbrugðið og viljum við halda á lofti merkjum forfeðra okkar í þeim efnum. Við sem stöndum að Matarklasa Suðurlands og Vestmannaeyja heitum gestum okkar því að hjá okkur fá þeir veitingar og viðmót í anda hefða í héraði.

Matarklasi Suðurlands og Vestmannaeyja hefur það að markmiði að varðveita og hefja til vegs og virðingar hefðir úr héraði í matargerð í anda hinna alþjóðlegu "Slow food" samtaka.

Með því að nýta hráefni úr næsta nágrenni okkar svo sem unnt er styrkjum við matvælaframleiðslu og aukum fæðuöryggi þjóðarinnar. Það styttir auk þess flutningaleiðir, minnkar mengum og sparar flutningskostnað.

Matarmenning er hluti af sögu hverrar þjóðar og ber því að varðveita hana eins og önnur menningarverðmæti.

Gisting

Þú ert hér: Forsíða or Gisting or Matarklasi Suðurlands

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English